Algengar spurningar
Finndu svör við algengustu spurningunum um gjafabréf Smiðju.
Um gjafabréfin
Smiðju gjafabréf gildir hjá öllum samstarfssmiðjunum okkar, handverks- og listafólki á Íslandi. Þú velur upphæðina og viðtakandinn velur sjálfur hvar hann notar inneignina, hvort sem það er hjá keramikhönnuði, skartgripahönnuði, listmálara eða öðru handverks- og listafólki.
Gjafabréfið gildir í tvö ár frá kaupdegi. Lokadagurinn stendur á gjafabréfinu sjálfu og á stöðusíðunni. Inneign sem er ónotuð þegar gildistíminn rennur út fellur niður og er ekki endurgreidd.
Já. Inneignina má nota í einu lagi eða í áföngum. Ef þú notar hluta hennar hjá einni smiðju getur þú notað afganginn seinna, hjá sömu smiðju eða annarri.
Já, þú getur fallið frá kaupum innan 14 daga frá afhendingu ef gjafabréfið hefur ekki verið notað. Sendu beiðni á smidja@smidja.gift og við endurgreiðum á sama greiðslukort innan 14 daga. Gjald fyrir prentað gjafabréf er ekki endurgreitt. Að öðru leyti eru gjafabréf ekki endurgreidd og inneignin er ekki greidd út í peningum. Nánar í skilmálunum.
Kaup og afhending
Á síðunni Kaupa gjafabréf velur þú upphæð og skráir nafn viðtakanda og þínar upplýsingar. Því næst skrifar þú kveðju á kortið og velur hvernig gjafabréfið á að berast: í tölvupósti eða prentað í umslagi með Póstinum. Að lokum greiðir þú og gjafabréfið berst þér í tölvupósti um leið og greiðslan er staðfest.
Já. Smelltu á „+ Bæta við gjafabréfi“ í fyrsta skrefinu. Hvert gjafabréf fær sína upphæð, sinn viðtakanda og sína kveðju og þú greiðir allt á sama tíma.
Já! Við prentum gjafabréfið með kveðjunni þinni og sendum það í fallegu umslagi frá Smiðju, tilbúið á gjafaborðið. Þú velur það í skrefinu Afhending og getur látið senda það heim til þín, ef þú ætlar að afhenda það í eigin persónu, eða beint til viðtakandans. Það kostar 1.490 kr. á hvert gjafabréf, burðargjald innifalið, og fer með Póstinum innan fárra virkra daga. Þú færð tölvupóst þegar það er komið í póst. Við sendum aðeins innanlands.
Já. Gjafabréfið fylgir tölvupóstinum sem PDF-skjal sem þú getur prentað út eða áframsent.
Notkun gjafabréfsins
Láttu samstarfssmiðjuna sem þú velur vita að þú viljir nota Smiðju gjafabréf, hvort sem þú kemur við eða hefur samband á netinu. Smiðjan skannar QR-kóðann eða slær inn gjafabréfskóðann og upphæðin dregst af inneigninni.
Sláðu inn gjafabréfskóðann á síðunni Athuga stöðu eða skannaðu QR-kóðann á gjafabréfinu. Þar sérðu eftirstöðvar, gildistíma og hvar gjafabréfið hefur verið notað.
Þá notar þú inneignina upp í verðið og greiðir smiðjunni mismuninn eins og venjulega.
Athugaðu fyrst ruslpóstinn. Gjafabréfið er gefið út til handhafa: hver sem er með gjafabréfskóðann getur notað inneignina, svo farðu vel með hann. Ef kóðinn týnist eða kemst í rangar hendur, hafðu samband á smidja@smidja.gift. Ef kaupandinn getur sýnt fram á kaupin getum við gert gamla kóðann ógildan og fært eftirstöðvarnar á nýjan.
Fyrir smiðjur
Lestu um samstarfið á síðunni Samstarf og endilega hafðu samband. Við tökum nýju handverks- og listafólki alltaf fagnandi.