Smiðja
← Til baka

Bosk

Reykjavík

Veski hönnuð og framleidd úr endurnýttum efnum

Bosk — 1
Bosk — 2
Bosk — 3
Bosk — 4
Bosk — 5
Bosk — 6
Bosk — 7
Bosk — 8
Bosk — 9
Bosk — 10
Bosk — 11

Um Bosk

Berglind Ósk Hlynsdóttir útskrifaðist sem fatahönnuður frá Listaháskóla Íslands árið 2021. Í útskriftarlínu sinni, „Þráðhyggja“, endurnýtti hún pólýester-satín og gaf því nýtt líf með því að rekja efnið upp, kemba það og spinna síðan eða þæfa úr því nýtt efni til frekari nota. Í verkefnum sínum eftir útskrift hefur hún einbeitt sér að því að finna ýmsar leiðir til að endurnýta efni sem annars hefði verið fleygt. Eftir útskrift hefur hún hlotið styrki frá Nýsköpunarsjóði námsmanna og Hönnunarsjóði til að halda áfram rannsóknum sínum á endurnýtingu efna. Berglind er hvað þekktust fyrir veskin sem hún hannar og framleiðir sjálf en hún tekur einnig við sérpöntunum.

Hægt er að fylgjast með Bosk á Instagram og TikTok


Vefsíða: boskboskbosk.com