Smiðja
← Til baka

Carissa Baktay

Reykjavík

Glerlistaverk úr endurunnu gleri í takmörkuðu upplagi

Carissa Baktay — 1
Carissa Baktay — 2
Carissa Baktay — 3
Carissa Baktay — 4
Carissa Baktay — 5
Carissa Baktay — 6
Carissa Baktay — 7
Carissa Baktay — 8
Carissa Baktay — 9
Carissa Baktay — 10
Carissa Baktay — 11

Hver er Carissa

Carissa Baktay er fjölhæf glerlistakona sem blandar saman tilraunakenndum vinnuferlum og efnum við hefðbundna glerblásturstækni. Hún útskrifaðist frá Alberta University of the Arts, stundaði nám við Rhode Island School of Design á námsstyrk og hefur lokið meistaragráðu frá Universidade Nova de Lisboa og er með rúmlega 20 ára reynslu á bakinu.

Carissa rekur Studio C, sem er eina kvenrekna glerblástursvinnustofan á Íslandi. Vinnustofan er ástríðuverkefni Carissu og er hún staðsett á Korpúlfsstöðum. Þar sameinar hún ást sína á vönduðum, handgerðum hlutum og umhverfisvitund. Þar nýtir hún jarðhita og endurunnið gler og gefur þannig efni sem áður var talið úrgangur nýtt líf og skapar þar stórkostleg glerlistaverk í takmörkuðu upplagi. Þegar hún er ekki að skapa á vinnustofu sinni miðlar hún víðtækri þekkingu sinni á glerlistinni í gegnum námskeið og vinnusmiðjur. Hægt er að kynna sér námskeiðin betur hér en einnig er hægt að fylgjast með Carissu og hennar vinnu á Instagram.

Vefsíða: www.carissabaktay.com