Smiðja
← Til baka

Flöff

Reykjavík

Hljóðdempandi veggpanelar úr gömlum textíl og íslenskri ull

Flöff — 1
Flöff — 2
Flöff — 3
Flöff — 4
Flöff — 5
Flöff — 6
Flöff — 7
Flöff — 8
Flöff — 9
Flöff — 10
Flöff — 11
Flöff — 12

Hvað er Flöff

Flöff er hönnunar- og nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að því að endurhanna textíl sem lokið hefur sínu fyrra hlutverki. Fyrsta vara Flöff er lína af hljóðdempandi veggpanelum þar sem hönnun, virkni og hringrásarhugsun mætast.

Panelarnir eru framleiddir úr gömlum textíl sem er flokkaður eftir lit, unninn niður í trefjar og blandaður íslenskri ull sem fellur til við hefðbundna ullarframleiðslu. Trefjarnar eru síðan þæfðar saman í nýtt feltefni. Þannig leiðir Flöff saman tvo vannýtta efnisstrauma og umbreytir þeim í nýjan efnivið með hagnýtt og fagurfræðilegt gildi. Flöff sér um allt hönnunar- og framleiðsluferlið hér innanlands. 

Áferð, litir og breytileiki hráefnisins fá að njóta sín og verða hluti af auðkenni vörunnar þar sem hver panell er einstakur í útliti. Hljóðdempandi eiginleikar efnisins hafa verið sannprófaðir með mælingum og panelarnir eru hannaðir til að bæta hljóðvist og upplifun heimila, vinnustaða og opinberra rýma.

Hægt er að fylgjast betur með Flöff á Instagram og versla á heimasíðunni þeirra www.floff.is


Vefsíða: floff.is