









Hvað er Fözz?
Fözz er ástríðuverkefni stofnað í Reykjavík í Nóvember árið 2021 af textíllistakonunni Stellu Ögmundsdóttur.
Stella útskrifaðist úr Hönnun og Nýsköpun í Tækniskólanum árið 2022, og svo úr Textíldeild Myndlistaskólans í Reykjavík árið 2024.
Allt í Fözz heiminum er skapað fríhendis af Stellu, þar sem nýtni og endurvinnsla eru höfð að leiðarljósi í hverju einasta verki. Ferlið stjórnast af því sem er í boði hverju sinni; en Fözz vinnur eingöngu með endurnýttan efnivið. Allur textílúrgangur frá Fözz er geymdur og að lokum endurunninn í nýjar flíkur eða listaverk. Þar sem Fözz getur ekki valið magn eða liti af efnivið sérstaklega þá stjórnar efniviðurinn algjörlega hönnuninni og þar að leiðandi er hver einasta flík alveg einstök.
Vefsíða: fozzstudio.com