Smiðja
← Til baka

Salóme Hollanders

Reykjavík

Verk á mörkum hönnunar og myndlistar

Salóme Hollanders — 1
Salóme Hollanders — 2
Salóme Hollanders — 3
Salóme Hollanders — 4
Salóme Hollanders — 5
Salóme Hollanders — 6
Salóme Hollanders — 7
Salóme Hollanders — 8
Salóme Hollanders — 9
Salóme Hollanders — 10
Salóme Hollanders — 11
Salóme Hollanders — 12
Salóme Hollanders — 13
Salóme Hollanders — 14

Um Salóme

Salóme Hollanders (f. 1996) lauk BA prófi við Listaháskóla Íslands í vöruhönnun vorið 2022. Verk hennar liggja gjarnan á mörkum hönnunar og myndlistar en í gegnum olíumálverk sín og skúlptúra teflir hún fram andhverfum á borð við geómetríu og formfestu í bland við ljóðrænu og dulúð. 

Salóme hefur einnig hannað speglalínuna glazed og álsnaga þar sem frasinn Drottinn blessi heimilið hefur verið settur í nýjan búning. Ásamt Þórdísi Lilju undir formerkjum altént studio hönnuðu þær hulu, lampa úr þæfðri íslenskri ull og steinleir. 

Verk hennar hafa verið sýnd hér á landi og erlendis en hún hefur meðal annars haldið einkasýningar á Listasafninu á Akureyri og í HERMA, sýnt á HönnunarMars í fjölda skipta og á Dutch Design Week.

Hægt er að fylgja Salóme og hennar ferli á Instagram og TikTok

Vefsíða: www.salomehollanders.com