











Um Start Studio
Start Studio er skapandi vettvangur Unnar Stellu Níelsdóttur, listakonu frá Akureyri. Þar mætast litrík málverk, hversdagsleg augnablik, skemmtilegar persónur og hugmyndir sem fá að þróast í ólíkar áttir.
Innblásturinn kemur víða að, meðal annars frá matarborðinu og litlu hlutunum sem gera hversdaginn sérstakan. Með húmor, litum og leikgleði skapar Stella sinn eigin myndheim og leyfir málverkinu að ferðast út fyrir strigann.
Í gegnum Start Studio getur þú fundið frumsamin málverk og listprent, fengið sérsniðið verk eða vegglist og tekið þátt í smiðjum og skapandi upplifunum. Þar fá hugmyndir að verða að sameiginlegum verkefnum þar sem list, matur og fólk koma saman.
Start Studio snýst um að skapa, prófa nýjar hugmyndir og finna skemmtilegar leiðir til að hafa list í kringum sig.
Hægt er að fylgja Start Studio á Instagram, Tiktok og á https://startstudio.is/
Vefsíða: startstudio.is