















Um Veru Hilmarsdóttur
Vera Hilmarsdóttir lauk BA námi í myndlist við Listaháskóla Íslands árið 2018. Í verkum sínum leitast hún við að einfalda eigin hugmyndir um tilveru mannsins í gegnum núvitund, tíma og tengsl við upprunann, náttúru og innra sjálf. Hún nýtir aðferðir á borð við línuteikningu og punktaaðferð til að skapa tilfinningu fyrir tíma og kyrrð. Verkin sýna form, takt og endurtekningu sem birta ákveðna innri ró, einskonar hugleiðsla á striga.
Hægt er að fylgja Veru og hennar listsköpun á Instagram og í gegnum heimasíðuna hennar.
Vefsíða: verahilmars.com/is